Ég er Bifrestingur og er stolt af því!

Ég er mjög ánægð með rektorinn okkar því hann er greinilega með bein í nefinu og kjark til að standa upp og taka afstöðu í erfiðu máli. Háskólinn á Bifröst á þarna afbragðs góðan rektor sem stendur vörð um skólann okkar. Í þessari umræðu allri saman undanfarnar vikur um mögulega sameiningu við HR hefur mikið verið einblínt á  sparnað í krónum sem sameining gæti haft í för með sér. Auðvitað er ekki hjá því komist að grípa til aðgerða vegna niðurskurðar fjárframlaga frá ríkinu, en þá er nauðsynlegt að skoða málið til enda áður en ákveðið er að leggja niður staðnámsbrautir á Bifröst eins og sameiningarviðræðurnar við HR virtust stefna að. Skoða þarf af alvöru aðrar leiðir til að stuðla að því að háskólastarfið hér á Bifröst geti haldið áfram með sem líkustum hætti og verið hefur. Að ógleymdu því hvað Háskólinn á Bifröst er mikilvægur fyrir sveitarfélagið Borgarbyggð, skólinn er stór vinnustaður og skapar einnig fjölmörg afleidd störf s.s. í leikskóla og grunnskóla auk þess sem við leitum mikið í Borgarnes eftir verslun og þjónustu.

 Að mínu mati er ómögulegt að meta skólastarfið hér á Bifröst til fjár.

Ég held að það þurfi að kynna betur út á við hvað þessi skóli er í raun., hvaða þýðingu skólinn hefur fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra. Við höfum lent í því af og til að neikvæð atvik sem hafa átt sér stað fara í fjölmiðlaumfjöllun og setja blett á okkar frábæra skóla og okkar fámenna en yndislega samfélag.  En starfið sem hér fer fram innan veggja Háskólans og mannlífið hér á campus á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Það þarf að setja í forgrunn í umræðunni um skólastarfið hér á Bifröst.

Hér býr á litlu svæði hópur af fólki sem öll eru hingað komin til að stefna að sama markmiði, að öðlast góða og hagnýta menntun. Hér verður því mikil samkennd með nemendum sem búa og læra saman alla daga. Kennsluaðferðir skólans var aðal ástæða þess að ég valdi að stunda mitt nám á Bifröst. Hér er mikil áhersla lögð á verkefnavinnu og að leysa raunhæf verkefni – og líklega er meiri verkefnavinna hér en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Hver áfangi í grunnnáminu er kenndur í tíu vikur og í hverjum áfanga eru gerð níu verkefni sem sum hver eru töluvert umfangsmikil. Þetta þýðir að nemendur ert að skila af þér gríðarlegum verkefnafjölda á hverri önn. Þessi verkefnavinna þrælar manni í gegnum námsefnið og gerir miklar kröfur til að nemendur meðtaki það sem fræðin kenna þeim. Þú ert strax látinn setja fræðilega þekkingu í samhengi við raunveruleg verkefni og þar er sérstaða Bifrastar einna mest. Að ógleymdum þeim ómetanlega lærdómi að þú þarft að vinna hratt og vel og standa skil á þínu innan skilafrestsins. Þetta skilar kraftmiklu fólki út í atvinnulífið að námi loknu, fólki sem gengur beint í störfin og leysir þau verkefni sem lögð eru fyrir þau.

Hér er mikið af fjölskyldufólki sem nær að sameina vel fjölskyldulíf og nám  með því að búa hér á staðnum. Börnin hér koma heim með skólabíl að skóla loknum og í flestum tilvikum hafa foreldrar kost á því að vera heima og taka á móti börnum sínum. Hér eru fjarlægðir litlar og börnin hafa okkur ávallt í seilingarfjarlægð. Og mikið er um að fólk hjálpist að og styðji hvert annað í námi og einkalífi. Ég get sagt fyrir mitt leyti að ég lít á það sem forréttindi að eiga möguleika á því að stunda nám á þann hátt sem ég get hérna. Hér stendur bíllinn minn ónotaður út á bílastæði dögum saman og það er mikill tímasparnaður í því að þurfa ekki að keyra á milli staða eins og ég þyrfti ef ég væri í háskólanámi í Reykjavík, tímasparnaður sem nýtist í lærdóm eða samveru með dætrunum. Börnin hér stunda íþróttir og aðrar tómstundir á Varmalandi eða í Borgarnesi og auðvitað fylgir því akstur. En af því við búum í þessu frábæra samfélagi sem við gerum hér á Bifröst þá að sjálfsögðu sameinast foreldrar um aksturinn og létta þannig undir hver með öðrum. Í Reykjavík væri þetta ekki jafn auðvelt og margir foreldrar eru á sífelldum þönum að skutla og sækja börnin í íþróttir og tómstundir.

Ég man hvernig mér leið fyrstu önnina mína hérna í námi, mér fannst ég lifa algerlega stresslausu lífi og var alsæl. Álagið í lífi mínu hérna tengdist helst því að ná að klára verkefnin á tilsettum tíma. Það eru gríðarleg lífsgæði fólgin í því að vera ekki alltaf á endalausum þeytingi á milli staða.

Hér höfum við nánast allt sem við þurfum og það í göngufæri, ég meira að segja geng 48 skref í skólann, en bara 22 skref ef ég fer út um svalahurðina Smile Hér er engin þung morgunumferð, ekkert óðagot af því það kemur hálka og umferðin í Reykjavík verður stopp, ég þarf ekki að skafa af bílnum og ég þarf ekki að skutla og sækja börn í skóla eða leikskóla og maður er ekki í endalausri tímaþröng við að ná á milli staða á réttum tíma. Það er ólíku saman að jafna að lifa í stressi eða lifa í afslöppuðu andrúmslofti.

En þó má ekki gleyma einum mikilvægasta punktinum því hér er líka mjög hagstætt að lifa, húsaleigan er  mjög sanngjörn og húsnæði hér er af ýmsum stærðum og gerðum og hentar flestum fjölskyldum. Hvar í Reykjavík gæti ég búið í þriggja herbergja raðhúsi á tveimur hæðum með garð fyrir framan og pall fyrir aftan og borgað 79 þúsund krónur á mánuði? Frá þeirri fjárhæð dragast svo húsaleigubætur sem taka mið af fjölskyldustærð og tekjum. 

Auk þess er margt innifalið í skólagjöldum sem annars væri útgjaldaliður hjá okkur værum við í námi annars staðar. Sem dæmi er háhraða internettenging innifalin í skólagjöldunum og ekki bara í skólahúsnæðinu sjálfu heldur í öllum íbúðum hér á campus. Við fáum prentkvóta á hverri önn og höfum aðgang að prenturum og ýmsu sem lítur að frágangi verkefna. Nemendur hafa aðgang að fullkominni líkamsrækt og gufubaði auk þess sem hér eru tveir heitir pottar og sólbaðsaðstaða - sól er þó ekki innifalin allt árið.

Hér á svæðinu höfum við einnig kaffihús, verslun, bókasafn og hraðbanka svo eitthvað sé nefnt. Golfvöllurinn Glanni er hér í göngufæri auk þess sem umhverfið hérna er ótrúlega fallegt og fjölbreytt og bíður upp á margs konar útiveru. Ég hvet alla sem hafa hug á því að fara í háskólanám að skoða vel hvort Háskólinn á Bifröst gæti ekki verið góður valkostur, ég mæli með skólanum og hef átt hér frábær ár en innan árs klára ég námið mitt og fer út í atvinnulífið þremur háskólagráðum ríkari en ekki minna rík af reynslu og vinum.

Háskólinn á Bifröst er frábær háskóli með góð gildi, góða kennara, gott starfsfólk, gott námsframboð og síðast en ekki síst frábæra nemendur, marga hverja sem ég held að við eigum eftir að sjá mikið af í framtíðinni. Fólk sem á eftir að láta að sér kveða í þjóðfélaginu. Þroskað fólk með góða menntun – það er fólk sem Ísland og íslendingar þurfa á að halda.

Áfram Bifröst!

 


mbl.is Nemendur styðja rektor á Bifröst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt að gerast....

Það eru ekki nema rúmir 9 mánuðir síðan ég bloggaði síðast..tæknilega séð hefði ég geta verið búin að eignast barn hehe.. en það er nú ekki í planinu alveg á næstunni Smile Nú er ég alveg að verða búin með mastersnámið...á "bara" eftir að skrifa 1 stk. mastersritgerð og klára tvö fög, mikið svakalega verður gott þegar skólinn verður búinn LoL nema auðvitað ég fái enga vinnu Errm, sem er kannski viðbúið svona með tilliti til aðstæðna í þjóðfélaginu! En ég er bara svo viss um að ég fái flotta vinnu Grin ég er að Secreta það Wink og hef þess vegna engar áhyggjur af því að fá ekki vinnu! Annars leikur lífið við mig Wink Ég er ástfangin og hamingjusöm InLove ég er búin að eignast yndislegan kærasta og ætlum við mæðgur að flytja til hans til Reykjavíkur fyrir jólin, stelpurnar mínar elska hann og meira að segja kötturinn sækir í að kúra hjá honum! LoL Það verður líklega stærsta breytingin sem ég geri á lífinu á þessum áratug hreinlega! En ég er viss um að ég sé að gera rétt, sambandið okkar gengur ljómandi vel og okkur líður vel saman. Það eina sem gæti verið betra í lífinu er að ég er með nettan námsleiða..en hann hlýtur að líða hjá... þarf bara pínku spark í rassinn. Ég er að fara í eitt lokapróf í næstu viku svo þetta mjakast allt saman. Helst finnst mér erfiðast að hlakka svona mikið til að flytja til kæró InLove það er stutt þangað til en samt svo langt... og svo er nú ekki það skemmtilegasta sem maður gerir að pakka niður öllu sínu hafurtaski og flytja! En samt ákveðin "hreinsun" í því, maður á allt of mikið af óþarfa dóti í lífi sínu. Whistling Svo er ég að gera fleiri góðar breytingar á lífinu - maður á að passa sig að festast ekki í sömu sporunum alltaf hreint.Wink Ég og systir mín ákváðum að vera samtaka í því að breyta mataræðinu sem var ekki vanþörf á. Þegar maður er í skóla þá er einhvern veginn aldrei almennilegur tími í neitt, þar á meðal að borða - svo ég var farin að borða allt of mikið brauð og annan "fljótlegan" mat sem maður greip í sig með lítilli fyrirhöfn. Núna erum við búnar að taka út allan sykur, allt hveiti, glútein, koffín, áfengi ofl. Erum með fínt matarplan svo maður hafi hugmynd um hvað maður eigi að borða. Ég finn stóran mun á mér eftir að við byrjuðum þetta átak, samt bara 10 dagar liðnir, og gott ef gallabuxurnar voru ekki aðeins rýmri í gær þegar ég fór í þær! W00t   Annars ákvað ég að stíga ekki á vigt í einn mánuð - enda er vigtin mín batteríslaus. Aðal ástæðan fyrir því er að breytingin á mataræðinu er fyrir betri heilsu og meiri vellíðan, ef ég missi einhver kíló þá er það bara bónus. Ég held líka að maður eigi ekki að stíga svona oft á vigt, það rífur mann bara niður... ekki það að hún stígi alltaf upp, heldur það að hún stendur svo lengi í stað - þegar mann langar til að hún sígi niður á við. En ég finn rosalegan mun á mér að vera laus við sykurinn! Cool Ég hef alltaf verið sólgin í sætindi alveg síðan ég man eftir mér, og hef alveg þurft að taka á honum stóra mínum til að hætta að borða nammi. En þetta er algjör snilld að taka sykurinn svona útúr mataræðinu líka, því það er sykur í næstum því öllu!! Það er eiginlega fáránlegt.W00t Ég hef nánast ekki fundið fyrir löngun í nammi sem er nýtt fyrir mér. En svo finnst mér vera léttara yfir mér (ekki það að ég hafi verið eitthvað þunglynd) en er samt einhvern veginn jákvæðari - en kannski er það líka bara ástin sem hjálpar til?InLove Það tók mig smá tíma að "þora" að leyfa mér að verða ástfangin - það hljómar kannski einkennilega þegar mann virkilega langar til að kynnast góðum manni að þora svo ekki út í djúpu laugina þegar á reynir. Við tókum okkur góðan tíma í að kynnast í rólegheitunum sem mér finnst frábært. Nú bý ég í 100 km fjarlægð svo við gátum heldur ekkert verið að hittast á hverju kvöldi en hittumst allar helgar sem hægt var. Svo urðum við bara nánari og nánari og ástin óx og óx. Smile Svo þegar ég var viss um að þetta væri maður sem ég gæti átt góða framtíð með ákvað ég að kynna hann fyrir dætrunum - þær eru jú órjúfanlegur hluti af mínu lífi og þær þurftu að vera jafn ánægðar með hann eins og ég til að hlutirnir gætu gengið upp. Þær voru svona líka alsælar með kappann, enda er hann ofsalega góður við þær og ég held honum sé farið að þykja mjög vænt um þær, það sést bara á því hvernig hann umgengst þær. Núna er tæpt ár síðan við kynntumst en kannski 7-8 mánuðir síðan hægt er að segja að við urðum par. Án þess þó að það sé hægt að setja einhverja ákveðna dagsetningu á það....það svona bara gerðist. LoL Og ég hef ennþá ekki orðið vör við neitt í fari hans sem mér líkar ekki, og hef ég samt verið að spá dálítið í allt...hehe.. maður þarf jú að elska allan manninn en ekki bara hluta af honum. Svo kemur það líka bara með aldrinum og meiri þroska að maður lætur ekki smámuni sem skipta engu máli fara í taugarnar á sér- það sem ég eyddi löngum tíma í að pirra mig á smámunum á mínum yngri árum - mikið hefði verið gott að vera með þroskaðri lífssýn þá hefði maður getað einbeitt sér meira að því að vera glaður með lífið bara... þó ég viti að mitt hjónaband átti sér aldrei framtíð eftir að bakkus tók völdin hjá kallinum, sama hvort ég tuðaði eða ekki Wink   En lífið mitt í dag er yndislegt, kreppan háir mér ekki mikið, námið gengur vel, dætur mínar eru glaðar, ég er ástfangin, hamingjusöm og almennt lánsöm í lífinu. Og ég nýt þess í botn Smile - La Vita e Bella InLove

Pælingar .....

Alltaf gaman að detta niður í lífspælingar seint á kvöldin þegar maður á að vera farinn að sofa! Er það samt ekki bara dálítið viðeigandi í upphafi nýs árs að velta lífinu og ástinni aðeins fyrir sér?

Einhver sagði einhvern tíma að maður ætti að ekki að fá það sem maður vill heldur vilja það sem maður fær! Það er ákveðinn sannleikur í þessu en.... ef maður vill ekki það sem maður fær - hafnar því og fær svo í kjölfarið það sem maður vill - er það ekki bara best?

En svo er stundum pínu flókið að vita hvað maður vill - mér finnst a.m.k. í mörgum tilfellum auðveldara að vita hvað ég vil ekki heldur en að vita hvað ég vil og þá sérstaklega varðandi hitt kynið þ.e. stráka ef einhver er í vafa ha ha Tounge - en er það ekki bara lúxusvandamál ??! Jú kannski, en allavega spurning hvort ekki sé mál til komið að reyna að spyrja sína innri konu hvað hún vill Wink

Ég var í mjög skemmtilegum kjaftaklúbb fyrir ekki löngu síðan þar sem við vorum nokkrar vinkonur að spjalla og svo einkennilega vill til að flestar vorum við einhleypar, sumar fráskildar með börn að vísu og bara ein sem var gift og með barn númer tvö í ofninum, sem reyndar er fætt núna. Og ég segi svo einkennilega vill til því allt eru þetta rosalega hressar og skemmtilegar stelpur. Nú og að sjálfsögðu bárust karlmenn og stefnumót í tal og var það eiginlega bara frábært umræðuefni.Smile Ef maður fer út að borða með strák og báðir aðilar virðast njóta kvöldsins, hvað er þá eðlilegur, tími fram að næstu samskiptum (símtal, sms, facebook skilaboð :þ) - er það næsta dag eða 5 dögum seinna? Errm Ég veit í raun ekki svarið en manni finnst samt líklegt að ef einhver áhugi er fyrir hendi þá myndi annar hvor aðilinn hafa samband næsta dag og a.m.k. þakka fyrir kvöldið og um leið opna á frekari samskipti. Og svo er það spurningin um fyrsta "deitið"...á að fara út að borða á veitingahús eða bara í göngutúr um laugardalinn eða hittast heima hjá öðrum hvorum aðilanum?

Þessi strákaumræða öll fékk mig samt til að hugsa. Ég er alveg með á hreinu hvernig mann ég vil ekki... en veit ég hvernig mann mig langar að eiga? Er ekki dálítið mikilvægt að vita að hverju maður er að leita til að maður finni það sem maður leitar að? Og svo er annað sem maður þorir varla að "segja upphátt" (á prenti...) að vill maður endilega eiga mann? Mér finnst agalega gaman að vera laus og liðug - ja að því marki sem maður er laus og liðugur með tvö börn W00t -  en mér finnst ég samt geta gert það sem mig langar til. Ég þarf ekki að taka tillit til þarfa annarar fullorðinnar manneskju. Ef ég vil fara til útlanda með vinkonum mínum þá þarf ég ekki að fá það samþykkt hjá hinum aðilanum, ef ég vil kúra í sófanum og horfa á "stelpumyndir" í heilt kvöld þá er enginn sem getur skipt sér af því. Og ég ræð hvert ég fer í sumarfrí án þess að þurfa að fara í samningaviðræður. En að vera laus og liðug þýðir líka minna kynlíf en ef maður er í föstu sambandi og ef maður lúllar hjá of mörgum strákum þá fær maður druslu stimpil á sig Shocking (...og hver vill það???) en strákur væri töff og kúl að ná í svona margar gellur. Svo þetta er ekki alveg svart og hvítt allt saman...

En svo er það hin hliðin að það gefur manni heilmikið að hafa aðra manneskju á heimilinu sem maður skemmt sér með, hlegið með, getur deilt hugsunum sínum með, hjálpast að við eldamennsku og heimilisstörf og notið þess að eyða tíma með og einhvern sem sýnir manni ást og virðingu. Ég held að öllum finnist gott að finna ást og umhyggju frá öðrum aðila með knúsi og öðru sem því fylgir Wink En svo er líka annað mál hvort maður finni slíkan "drauma" maka einhvers staðar....

Svo er það spurningin um hvernig "týpu" sækir maður í? Ég held að margir sem ég hef slegið mér upp með í fortíðinni hafi verið ágætis menn en mismikil alvara í spilinu - stundum má maður leika sér  Toungeog/eða gera mistök.... En sumir hafa hins vegar ekki verið réttir fyrir mig.. þ.e.a.s. ekki gert mér gott að vera með þeim. Og þá kemur til sögunnar listinn yfir það sem ég vil ekki... sem hefur mótast af reynslunni.... og hmm það er held ég vandamálið... ég veit hvað ég vil ekki en veit ekki nógu vel hvað ég vil. Ég vil ekki mann sem drekkur mikið, ekki reykingamann, ekki einhvern sem á dýrt áhugamál og ekki brjálaðan fótboltaáhugamann-þá veit maður alveg hvar forgangsröðunin er ha ha... þó að eðlilegur áhugi sé auðvitað bara góður - ég er að meina týpuna sem situr allar heldar og horfir á fótbotlta á öllum rásum og tekur sumarfríið sitt í kringum Em og HM til að missa ekki af neinum leik Whistling  Svo er ég svo mikil reglumanneskja þannig séð að ég vil mann sem er með sína hluti á hreinu í lífinu, og þá meina ég ekki með tíu bréf frá Intrum í forstofunni missir íbúðina vegna húsaleiguskuldar eða eitthvað álíka. Auðvitað getur fólk átt skuldir en það er stór munur á því að borga af þeim eða láta þær hrúgast upp.

Ég held að mig langi í meðalmanninn... hmm þá meina ég hæðina. Ég sé mig ekki fyrir mér með einhverjum sem er 190 eða stærri, þá yrði stærðarmunurinn bara hlægilegur W00t. Þar sem ég er hálfgerður dvergur finnst mér hálf afkáralegt að vera með mjög hávöxnum manni ha ha.. eða er það ekki?  Svo er það spurningin um aldur ...úff.... ég held að gullni meðalvegurinn sé +/- 5 ár.. ef munurinn er meiri í aðra hvora áttina þá getur það skapað vandamál. Ég sló mér einu sinni upp með manni sem var töluvert eldri en ég, alveg eðalgaur að mörgu leyti en ég setti aldursmuninn rosalega fyrir mig, kannski var það rangt - ég veit ekki...en svo var hann líka með síðara hár en ég og þá var ég nú samt með hár niður á bak hahaha.... Já... þetta er ekki alveg einfalt alltaf. Ef maður kynntist t.d. yngri manni sem ætti ekkert barn þá kæmi fyrr pressa að eignast barn saman heldur en ef viðkomandi ætti barn fyrir. Líka eru þeir sem eiga börn skilningsríkari á það hvað lífið snýst mikið um börnin og að maður þarf að forgangsraða í lífinu þar sem annað getur verið sett til hliðar, fyrir utan að þekkja það hvað börn geta látið hafa fyrir sér ef þannig liggur á þeim Errm En þá reyndar eru fleiri sem fylgja með í pakkanum þ.e.a.s. sú fyrrverandi/barnsmóðirin og þá er bara hægt að vona að samskiptin þar á milli séu góð og eðlileg.

Ok... hvað erum við þá komin með hérna..... "draumaprinsinn" er þá líklega u.þ.b. svona: Meðalmaður á hæð - á barn/börn - drekkur í hófi - reykir ekki - er nálægt mér í aldri - er ekki með síðara hár en ég - er ekki óreglumaður í fjármálum - er "húslegur" og óhræddur við heimilisverkin og  er ekki djúpt sokkinn í eitthvað áhugamál. En svo er auðvitað aðalmálið að hann þarf að elska mig, bera virðingu fyrir mér, vera trúr og traustur og vera góður vinur og elskhugi InLove Shiiit það eru engar smá kröfur... ætli maður finni einhvern sem sér sjálfan sig í þessari "starfslýsingu" ? Svo þarf ég auðvitað að passa inn í listann hans um hvað hann vill og vill ekki! Og þá veit ég það og þá er það bara að hafa augun opin.....

Svo þarf maður kannski að kasta öllum þessum rökhugsuðu viðmiðunum út um gluggann ef maður hittir svo manninn sem fær mann til að fá fiðrildi í magann og kikna í hnjánum í hvert sinn sem maður sér hann - en er það ekki það sem mann langar kannski mest til? InLove 

Já já sæll...engin smá langloka! En þetta er bara hluti af því sem þýtur í gegnum alþjóðaflugvöllinn í höfðinu á mér! Það eru endalausar tilkynningar í hátalarakerfinu og allt á fullu spani stundum Whistling Svo það er kannski ráð að fara að knúsa koddann og hvíla hugann til að geta nýtt daginn á morgun í eitthvað gagnlegt.

Svo læt ég fljóta með smá speki sem mér finnst alveg bráðskemmtileg:

Whatever you give a woman, she will make greater. If you give her sperm, she'll give you a baby. If you give her a house, she'll give you a home. If you give her groceries, she'll give you a meal. If you give her a smile, she'll give you her heart. She multiplies and enlarges what is given to her. So, if you give her any crap, be ready to receive a ton of shit.........

 

Þar til síðar.....


Lífið og dauðinn

Lífið er oft svo ósanngjarnt en það getur dauðinn verið líka.
Á miðvikudag lést Kittý frænka mín langt fyrir aldur fram úr krabbameini sem því miður er sjúkdómur sem sækir á marga í minni ætt. Kittý var kona sem geilsaði af, alltaf svo kát og með dillandi hlátur og ég man eftir því sem unglingur að langa til að vera alveg eins og Kittý, hún var svo frábær. Hún var svo kröftug í sinni baráttu við krabbameinið að ég hélt að hún hlyti að sigra á endanum, en því miður kom annað á daginn. Ég er mjög stolt af Kittý frænku minni, í fyrra fór hún til New York og gekk í Avon göngunni til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Hún gekk hvorki meira né minna en eitt og hálft maraþon! Margt fullfrískt fólk treystir sér ekki einu sinni í slík afrek. Ég finn mikið til með Ella, Töru og Marteini sem hafa misst svo mikið núna. Ég samhryggist þeim innilega.
Á miðvikudag var líka borin til grafar kona sem ég vann með fyrir nokkrum árum, en hún hafði glímt við þunglyndi sem bar hana því miður ofurliði. Þegar ég þekkti hana var hún einmitt sú kona sem var alltaf svo léttlynd og brosandi og hafði mjög góða nærveru.
En því miður er lífið stundum óréttlátt - ein berst fyrir lífinu sem hana langar svo til að lifa en önnur gefst upp á lífinu sem hana langar ekki til að lifa og eiginmenn þeirra og börn þurfa að takast á við sorgina og missinn.
Þegar svona áföll dynja yfir þá verður maður meyr og fer líka að hugsa um sitt líf, sína fjölskyldu, börnin sín og hvað maður hefur óendanlega mikið til að vera þakklátur fyrir. Lífið er ekki sjálfsagt og hver sem er getur lent í veikindum eða slysum. Mig langar til að verða eins góð manneskja og ég get, gefa af mér, hugsa vel um börnin mín, lifa heilbrigðu lífi,  og njóta þess að vera til og lifa lífinu í sátt við sjálfa mig og aðra.
Ef maður er hamingjusamur í hjarta sínu þá er lífið gott.

Vetur, skóli og skóli

Úff hvað það er alltaf kalt á morgnana núna. Ég er ekkert smá fegin að búa í svona örþorpi þar sem það er stutt í allt - það kemur sér vel þegar veðrið er fúlt. Síðasta vika er búin að taka á í skólanum.... ég fór í tvö lokapróf sem ég held að hafi gengið bara ágætlega að vanda. Ég reyndi að nota hvern lausan tíma til að læra svo heimilisverkin fengu bara að bíða. Svo gærdagurinn eftir próf fór í að þvo einnar viku þvottafjall og taka til Smile það ætti eiginlega að bjóða uppá heimilishjálp fyrir námsmenn þegar það eru próf LoL Stelpurnar mínar eru hjá pabba sínum  um helgina svo ég er ein í kotinu núna um helgina sem er gott til að hlaða batteríin Wink Ég þarf reyndar að læra eins og brjálæðingur.. en get amk gert það áhyggjulaust, ein stór ritgerð sem þarf að klára og eitt verkefni sem gæti tekið lúmskt langan tíma þó það eigi bara að vera 3-5 síður og 10 mín fyrirlestur, skólinn sér manni fyrir afþreyingu um helgar sko Tounge Annars leyfði ég mér lúxuskaup í gær... keypti mér alveg geggjaða peysu Grin og það bara hér á Bifröst sko... það er ein hérna að selja peysur frá íslenskum fatahönnuðum sem eru æði Smile Annars vantar mig eitthvað til að hlakka til - jólin eru auðvitað á leiðinni en það er búið að vera alltaf svo marg skemmtilegt að gerast hjá mér með reglulegu millibili s.l. 2 ár að ég er ekki vön því að  það sé ekki eitthvað til að hlakka til...mig langar í fiðrildi í magann Tounge hmm snöggt yfirlit yfir sl tvö ár síðan ég fór á Bifröst. Ég kom hingað haustið 2007 og þá var ekki fiðrildi í maganum, heldur kvíðahnútur. Ég vissi ekkert hvort ég væri að gera rétt með því að selja íbúðina mína, segja upp vinnunni og flytja hingað í fámennið á Bifröst. Ég var nýlega skilin og var enn að vinna úr því. Eeeen vá hvað þetta var hárrétt ákvörðun á hárréttum tíma - klárlega besta ákvörðun lífs míns! Fljótlega var farið að kynda undir manni með möguleikanum um að fara í skiptinám - og ég ákvað að sækja um Wink Ég fékk pláss í skóla á Ítalíu og við tók 9 mánaða fiðrildi í maganum af tilhlökkun/kvíða yfir því... um sumarið 2008 naut ég þess að vera til. Tók mótorhjólapróf (hélt alltaf að ég væri of mikill dvergur til að púlla það hehehe) en það er sko ekkert mál og bara geeeeðveikt gaman Smile var líka að vinna smá í Leður og list. Ég hafði aldrei frá því ég átti börnin verið ein í mánuð og reyndar aldrei s.l. 17 ár verið ein í mánuð Cool svo þetta var alveg nýtt fyrir mér. En ég var á fullu í félagslífinu. Ef það voru ekki mótorhjólatímar, þá voru það kaffihúsaferðir, bíóferðir, sundferðir, hjólatúrar o.s.frv. ég held ég hafi verið heima eitt kvöld og gert ekki neitt...allan júlímánuð! Svo tók Ítalíuferðin okkar mæðgna við í ágúst - sem var æði í alla staði -  þó Ísland hafi "hrunið" þegar við vorum úti. Ég ferðaðist eins og ég gat m.v. breyttar fjárhagsaðstæður þegar peningurinn minnkaði um helming - fór til Feneyja, Rómar, Genova til Lugano í Sviss og fleiri staða. Ég er allavega búin að borga Ítalíuævintýrið núna - kláraði það í júní á þessu ári. Svo var tilhlökkun að koma heim aftur um áramótin.  Sl. sumar fór í endalausa tilhlökkun líka - skemmtilegt ferðalag um versló með fullt af vinum, ég lærði köfun, útskrift í sept, U2 tónleikar í ágúst, útskriftarferðin til Tyrklands þar sem ég kláraði köfunarnámskeiðið Smile og svo að byrja í mastersnáminu í sept. Núna vantar mig eitthvað til að hlakka til, svona til að maður haldi fókus. Við vinkonurnar höfum verið að gæla við að fara til New York næsta sumar en erum pínu ragar við að kaupa flug núna svona miðað við Sterling dæmisöguna. Svo það er ekkert skemmtilegt framundan... eða hmm.. sko ekkert svona sem maður hugsar um og fær fiðrildi í magann yfir Tounge En það er eitt ótrúlega skemmtilegt við svona tilfinningar. Þegar ég skildi var ég auðvitað ein rjúkandi rúst tilfinningalega sem tók mig tíma að vinna mig frá. Þá einmitt áttaði ég mig á því að ég hafði verið mjög "flöt" tilfinningalega - var aldrei rosa glöð eða mjög döpur og hlakkaði ekki mikið til neins, enda lífið erfitt og lítið til að hlakka til því miður. En ég man eftir því um miðja haustönn 2007 þegar það kom í ljós að ég gæti farið í skiptinám til Ítalíu hvað allt í einu lifnaði tilfinningaflóran við og ég varð svo spennt og glöð og hlakkaði svo til að mig langaði að dansa og ég gat ekki hætt að brosa LoL Það er gott að tilfinningaflóran kom aftur!! En ég er líka ekkert smá þakklát fyrir það hvar ég er í dag! Mér líður vel, ég er örugg með mig, ég veit að ég get það sem ég ætla mér, ég er komin yfir skilnaðinn og þann pakka og er búin að skapa mér gott líf hér í sveitinni, ég á margar æðislegar vinkonur og vini, er á góðum stað fjárhagslega, skólinn gengur rosalega vel, ég er hrikalega ánægð með námið, stelpurnar mínar eru ánægðar hér og eiga vini í hverju húsi svo eiginlega er lífið bara akkúrat eins og það á að vera Smile Mig langar stundum pínu að finna mér góðan kærasta en ég veit að það kemur bara þegar það kemur. Ég ætla a.m.k. ekki sætta mig við þann fyrsta sem "vill" mig...hehe.. amk ekki nema ég vilji hann jafn mikið til baka. Ég hef nú alveg kynnst mönnum eftir skilnaðinn en aldrei fundið þannig tilfinningar að mig langaði að fara í fast samband. Ég kynntist einum fáum mánuðum eftir skilnaðinn sem ég var eitthvað að dúlla mér með í c.a. tvo mánuði en ég var bara ekki búin að jafna mig nóg tilfinningalega svo ég var bara ekki tilbúin í neitt samband. Og þá ákvað ég að vera ekkert að flækja líf mitt með samböndum fyrr en ég væri alveg tilbúin. Og hef þá eiginlega bara verið að skjóta mér með mönnum sem ég veit að ég myndi aldrei vilja fara í fast samband með en stundum langar mann bara í pínu knús Smile En auðvitað langar mig til að verða ástfangin InLove því það er svo agalega notaleg tilfinning, hún er eitthvað svo hlý og mjúk. En nóg af því.. ætla að taka einn hring í ræktinni áður en bókasafnið opnar og blessuð kröfuréttarritgerðin fer að stjórna lífi mínu!! yfir og út...

Flensutímabilið endalausa

Maður er nú nett búin að fá nóg af veikindum núna í september held ég bara! Við mæðgur erum búnar að vera veikar sitt á hvað og stundum allar saman... Emilía skott er búin að vera veik núna í næstum því viku! Það hlýtur að vera eitthvað í loftinu hérna á heimilinu Devil Annars er Emilía búin að vera að vandræðast með vökva og slím í eyrunum í dálítinn tíma, og er með stóra nefkirtla. Hún fékk í haust öflugan pensilín kúr sem náði samt ekki að koma fyrir þetta. Svo hefur hún verið með sterapúst í nefið núna í tæpar 6 vikur... og á þeim tíma hefur hún orðið þrisvar veik og alltaf í nokkra daga í einu - og núna í viku.... þetta er nú ekki gott. En við erum að fara á föstudaginn aftur til háls nef og eyrnalæknisins og mér finnst nú líklegt að hann svæfi hana og taki nefkirtlana og hreinsi út úr eyrunum.. þá kannski fær hún heyrnina alveg til baka aftur. Þegar við fórum til hans í lok ágúst þá talaði hann um að hann þyrfti kannski að "rota" hana og hreinsa þetta út. Anna Lena var með okkur inni hjá honum og litla skinninu leist nú ekki nógu vel á þetta hjá honum. Við vorum varla komnar út úr stofunni hjá honum þegar hún togar í hendina á mér og spyr með miklum áhyggjusvip af hverju hann vilji rota hana Emilíu!!! Aaaa dúllan mín!! Enda hvernig eiga litlar skottur að skilja svona tal???

 Ég hef nú varla sést í skólanum undanfarnar tvær vikur vegna veikinda hérna á heimilinu Undecided En hef þó mætt í þriðjudagsprófin í Eignarétti. En svo þegar maður þarf að húka svona mikið heima þá verður maður svo framtakslaus við námið.. hmm ég þarf nú alveg að fara að spýta í lófana... það er líka frekar erfitt að einbeita sér við lestur á lagabókum þegar cartoon network eða einhver teiknimynd er í gangi.. svo er litla músin mín svoddan mömmumús að hún vill alltaf hafa mig hjá sér þegar hún er að horfa InLove 

En núna vona ég að þessu flensutímabili fari nú að ljúka!

kv. Ásan

 


Tíminn flýgur!

Já já.. einmitt .. bloggaði síðast í maí!! Hvað á það nú að þýða... hmm kannski bara það að það hefur verið crazy sumar og haust hjá mér  he he... Og líklega enginn sem fer bloggrúnt með viðkomu á minni síðu vegna bloggskorts!!! En anyway.... mér tókst að klára BS ritgerðina mína á mettíma Smile og fékk ljómandi fína einkunn í þokkabót. Til að fagna skilunum skellti ég mér til London 14. ágúst með Unni vinkonu og fór á U2 tónleika á Wembley.. váááá hvað þetta voru miklir snilldartónleikar!!!! Geðveikir alveg.. ég á eftir að lifa á þessari lífsreynslu lengi. Núna langar mig agalega á Muse tónleikana á Parken í október!! Verst að maður er bara námsmannadrusla á námslánum Tounge ekki það... fór nú samt líka í 9 daga til Tyrklands í ágúst í útskriftarferð og lifði þar hinu ljúfa lífi með guðaveigum og glæsilegum karlmönnum Grin og já.. það voru nokkrar vinkonur mínar þarna með líka..... Sú ferð var nú reyndar líka algjörlega legendary... og myndakvöldið ógurlega nálgast eins og óð fluga... shit...en what happens in Turkey - stays in Turkey.. svo það hlýtur líka að ná yfir myndbirtingarnar á myndakvöldinu skulum við ætla.... en annars var ég ekki að skandala neitt í Tyrklandi sko.... var agalega stillt og prúð! Svo nánast hljóp ég úr flugvélinni beint í mína eigin útskrift! Og snillingurinn ég útskrifaðist með glans og verðlaunum og alles... það er sko ekki leiðinleg tilfinning Cool

Núna er maður orðin agalega mikið fullorðins eitthvað fyrst maður er orðinn mastersnemi í lögfræði.. ég held í alvörunni að ég hafi stækkað eitthvað við þetta.. líklega fer að slaga hátt upp í 1.60 eftir þetta allt saman W00t Svo ákvað ég að skella mér á Boot Camp námskeið.. er búin að sitja á rassinum og læra of lengi.. alveg kominn tími á að hrista sig aðeins!  Uuuu og já.. ég er dálítið að spá í hvort það hafi verið góð hugmynd eða ekki.. hmm ef maður spáir í þetta - maður tekur fáránlega á því.. getur svo næstum því ekki staðið fyrir harðsperrum daginn eftir.... en svo fer maður aftur og kvelst agalega við að púla með svona miklar harðsperrur og viti menn : meiri harðsperrur næsta dag!Shocking  Þannig að þessi holla hreyfing sem á að vera svo góð fyrir mann lætur mann ganga um eins og áttrætt gamalmenni! En þetta hlýtur að virka.. nógu andskoti er maður að púla! Pardon my french... en ég gefst ekki upp..það er not my style, ég hef yfirleitt klárað það sem ég byrja á hingað til.. og núna er verkefnið að slípa musterið til LoL það var búið að vera í vanrækslu hjá mér aðeins of lengi og búið að hlaða á sig mosa sem þarf að hreinsa burtu.. svona more or less.. maður fer ekkert í tvítuga líkamann aftur þykist ég vita Wink 

Dæturnar fengu óvæntan tónlistaráhuga og voru mjög ákveðnar í því að vilja læra á hljóðfæri í haust. Anna Lena er byrjuð að læra á píanó og Emilía vildi læra á fiðlu..ég mætti með Emilíu í tónlistarskólann í fyrsta skiptið og mér til mikillar undrunar var mér rétt fiðla og sagt að æfa mig heima! Og já.... ég þarf víst að læra á fiðluna með henni! Frekar fyndið.. þetta er suzuki kennsla og þá læra mömmurnar líka á fiðlu til að kenna börnunum heima á milli fiðlutíma. Ég er semsagt mastersnemi í lögfræði sem leggur líka stund á fiðlunám LoL LoL vá hvað ég keyrði hlæjandi heim eftir fyrsta tímann!

 Svona leikur lífið við mig alltaf hreint! Eintóm gleði og hamingja.... það væri verra ef það væri betra!

 Till next time...

Ace...

 


Sumarönn á fullu :D

Jæja - núna þarf ég sárlega að finna námsnennuna, ég veit bara alls ekki hvar ég hef skilið hana eftir Woundering Fyrsti áfanginn á sumarönninni er búinn og ég hef sló öll met í athyglisbresti , rétt svona klóraði í yfirborðið á námsefninu......slæm fjárfesting bókin sem ég keypti dýrum dómum! Annars var ég mjög dugleg eina helgi um daginn, ég kom saman rannsóknaráætluninni minni fyrir Bs ritgerðina og fór á bókhlöðuna og ljósritaði uppúr Alþingistíðindum frá 1867 úff hvað mér fannst ég finna fyrir sögunni þegar ég var að lesa um konungsfulltrúa á íslensku þingi.... En ég er vel stemmd fyrir Bs ritgerðinni  minni og vona að námsgleðin verði við völd við skrifin... þar sem ég ætla mér mjööög knappan tíma til að skrifa hana og ganga frá henni. Þarf eiginlega að skipuleggja mig þannig að ég verði komin eitthvað áleiðis áður en sumarönnin verður búin, svo þetta sleppi nú til og ég nái að skila á réttum tíma.Cool Lokaskil ritgerðarinnar 11. ágúst.. og svoooooo U2 tónleikar í LONDON Wizard Júhúúú.. úff hvað ég hlakka til.

Ég fór og keypti mér mótorhjólagalla í síðustu viku. Svo núna vantar bara rétta hjólið fyrir sumarið Joyful ég get bara ekki ákveðið mig hvernig hjól mig langar mest í... hehe.. ef lífið væri nú bara með svona "erfiðum" vandamálum LoL

Það er ferðalag á næstunni, en um hvítasunnuhelgina förum við mæðgur austur á land í brúðkaupið hjá Tjörva bróður og Guðrúnu. Við pöntuðum okkur gistingu á gistiheimili og ég sé fram á skemmtilega helgi!! Aðal vandinn er að finna viðeigandi föt... brúðkaupið verður nefninlega haldið úti undir berum himni...og auðvitað vill maður vera fínn en samt ekki að krókna úr kulda, en ég held að það vandamál leysist farsællega Wink enn og aftur ágætt að þakka fyrir lítil vandamál í lífinu - enda held ég að það sé óhætt að segja að lífið leiki við mig og dæturnar um þessar mundir Grin eintóm gleði!

Í gærkvöldi var úrslitakvöldið í Eurovision og vourm við mæðgur með litlu frænku hana Elfu Dögg í pössun, það var feikna stuð hjá okkur, dömurnar dönsuðu við hvert lagið á fætur öðru og gríðarleg stemming! Og við erum virkilega stoltar af frammistöðu Jóhönnu í Moskvu, helsta áhyggju efni eldri dótturinnar er að vita hvenær hún fær að koma fram í sjónvarpinu og syngja! Litla dúllan Smile Veðrið er búið að vera frábært undanfarna daga. Ég dró dæturnar og Elfu Dögg í gönguferð uppá Grábrók í gær, vesalings tuskurnar urðu alveg búnar á því InLove og þegar við komum heim aftur þá hlömmuðu þær sér allar í sófann og horfðu á heila mynd án þess að hreyfa legg né lið! Sem er nú ekki sérstaklega algengt hjá dömum á aldrinum 4-8 ára Tounge Í dag var líka frábært veður en samt aðeins of mikill vindur, og hann var nógu kaldur til að maður sat ekki lengi úti í einu.... en sumarið er samt klárlega komið!!

Ég er að hugsa um að leyfa eldri dótturinni að fara í sumarbúðir í eina viku í júní með Erlu frænku sinni. Það er ekkert sértsaklega ódýrt en ég held að hún hefði rosalega gaman af því að fara og hugsa að ég splæsi því bara á hana. 

Svo þarf ég að muna að taka ekki fleira að mér á næstunni - stundum held ég að ég hafi svo mikinn tíma í allt sem mig langar að gera Tounge - ég er að byrja í nýjum áfanga á morgun, svo tók ég ásamt fleirum að mér sölu á "sóðabolunum" fyrir útskriftarfélagið, er líka  að sjá um með vinkonu minni að láta útbúa háskólapeysur sem fjáröflun fyrir útskriftarfélagið, tók líka að mér að þrífa íbúðir hjá skólanum , sem er líka fjáröflun, svo verð ég á pizzuvakt fljótlega og svo ... þarf ég líka að byrja að vinna í BS ritgerðinni! Jamm - líklega lítið um frítíma á næstunni Errm Að ógleymdum dætrunum sem þurfa sína athygli og fá hana að sjálfsögðu, þeas þegar þær hafa tíma fyrir mig! Oftar en ekki þarf ég að draga þær inn í kvöldmat og "pína" þær til að fara að sofa - það er jú ekki komið kvöld þar sem það er svo bjart úti! Alveg klassísk umræða þegar maður er að útskýra að það sé kominn háttatími þó veðrið úti sé þannig að klukkan gæti verið þrjú að degi til.... erfitt að skilja svona lagað þegar maður er bara fimm ára útipúki!

Læt þetta duga í bili - er alveg búin að missa mig í "skrifræpu" he he.. kvöldmatar bras bíður.. Later.... 


Gleðilegt sumar!

Tíminn flýgur áfram.. sem er stundum gott og stundum ekki svo gott.... Mig hlakkar til að útskrifast svo í því tilliti er gott hvað tíminn rúllar áfram.. en svo eldist maður svo hratt og þá má tíminn líða hægar.. en ég er alltaf sami unglingurinn í anda samt - held ég Whistling  Ég fékk alveg súper góðar einkunnir úr vorannarprófunum og er eiginlega búin að brosa hringinn síðan. Núna er ég búin að skila misserisverkefni með hópnum mínum og við erum líka búnar í málsvörn, svo bíður maður spenntur fram í næstu viku að vita hvaða einkunn við fáum Wink Hér í skólanum er samt aldrei pása til að anda finnst manni. Strax á mánudaginn byrjar sumarönnin og er fyrsta fagið International Commercial Law og ég á eftir að kaupa doðrantinn sem á að lesa fyrir þann kúrs. Svo skólinn heldur áfram á fullu út júní!

Annars hefur mér gengið ljómandi vel að lifa lífinu frá áramótum, þrátt fyrir kreppu Cool og hef gert margt skemmtilegt í góðra vina hópi. Næst á dagskrá er að finna mótorhjól fyrir sumarið. Ég er byrjuð að leita og held að ég ætti alveg að geta fundið mér hjól á skikkanlegu verði, ef einhver veit um gott hjól þá má láta mig vita. Í dag er sumardagurinn fyrsti og nóg um að vera hér á Bifröst, það er opinn dagur og allir í sumarskapi, það verður hoppikastali og hestar fyrir börnin, deildarleikar sem er keppni á milli deilda í skólanum í þekktum íþróttum eins og háhælaskókapphlaupi og skjalatöskuhlaupi ásamt kúluvarpi ofl... Útskriftarfélagið býður uppá bílaþvott á vægu verði og svo sér útskriftarfélagið líka um vöfflukaffið sem er í boði skólans. Svo um að gera að fá sér bíltúr í góða veðrinu og fá sér fríar vöfflur og fá svo frímiða í göngin til baka. Annars erum við mæðgur á leið í fermingarveislu seinnipartinn, hún Kara frænka mín hefur náð þeim merka áfanga að fermast auk þess að vera orðin hálfum cm stærri en ég W00t sem hefur verið hennar helsta markmið lengi.... en ég sagði henni að hún ætti nú að setja markið hærra en það InLove Sumarið leggst bara vel í okkur hérna og ég ætla að reyna að njóta þess til hins ýtrasta! Lífið er til að lifa því og njóta og það er planið mitt líka Wink  Góðar stundir... 


Stund á milli stríða :D

Tíminn flýgur áfram þessa dagana....ég held að eftir því sem maður verður eldri þá líður tíminn alltaf hraðar og hraðar.... ég verð orðin fimmtug áður en ég veit af Crying Ekki það að ég haldi að lífinu sé lokið þegar maður verður fimmtugur Whistling   en samt..... það er bara downhill from there...... Skólinn er búinn að taka allan minn tíma undanfarið. Í síðustu viku voru prófin fyrir vorönnina, og váááááá hvað það var gott þegar þau voru búin! Ég er bara mjög sátt með hvernig mér fannst mér ganga - það kemur svo bara í ljós hvort kennararnir hafi sömu skoðun á því og ég LoL . Svo á þriðjudag byrja ég í Missó sem tekur þrjár vikur alls og svo byrjar sumarönnin sem stendur til loka júní. Þá ætla ég að nota júlí í að skrifa BS ritgerðina mína sem ég á að skila 11.ágúst. En þar sem tíminn flýgur áfram þá veit ég að ég verð orðin útskrifaður viðskiptalögfræðingur áður en ég veit af!! Amk 5. september Cool   Og svo 7. september byrja ég í Mastersnáminu.... öll þessi plön eru gerð uppá guð og lukkuna sko... en ég held ég standi alveg undir því að koma öllu þessu námi frá mér sómasamlega, svo ég á síður von á því að þurfa að breyta þessu  plani mikið. En ég fæ allavega smá skóla frí frá 11. ágúst til 7.september Grin Og ég FER Á U2 TÓNLEIKA  Í LONDON ÞANN 15. ÁGÚST!!!! Mig hlakkar ekkert smá til W00t vona bara að ég finni flug og hótel Whistling en ég á amk miða á tónleikana.... Svo það verður vonandi skemmtilegt sumar framundan...- ég er sko komin í sumarskap þrátt fyrir snjóbyl fyrir utan gluggann!! En meðal þess sem mig langar að koma inn í sumardagskrána hjá mér er mögulega ferð á þjóðhátíð með góðum hópi Bifrestinga..svo er verið að plana útilegur og fleira skemmtilegt..sumarönnin í fyrra var svo frábær.. æðislegt veður og endalausar grillveislur og gleði Wink   og mikil samvera með dætrunum.  Ég er að byrja á to do lista fyrir sumarið, en á honum eru meðal annars eftirfarandi atriði:  Fara á Höfn í brúðkaup, Útilega í Húsafell með dæturnar (hef aldrei komið þangað..) Fara í kajakferð á Stokkseyri, Ganga á Esjuna, Skoða Borgarfjörðinn betur og fara alla vega eina helgi í bústað og svo langar mig að fara á Reykhóla með dæturnar amk eina helgi eða svo. Þetta er svona það sem ég hef verið að spá í að væri gaman að gera í sumar svo kemur bara í ljós hvað verður framkvæmt. Og já... hmm svo verð ég auðvitað í júlí að skrifa Bs ritgerð Whistling en ég verð bara snögg með hana til að hafa tíma í skemmtidagskrána Tounge

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband