Ég er Bifrestingur og er stolt af því!

Ég er mjög ánægð með rektorinn okkar því hann er greinilega með bein í nefinu og kjark til að standa upp og taka afstöðu í erfiðu máli. Háskólinn á Bifröst á þarna afbragðs góðan rektor sem stendur vörð um skólann okkar. Í þessari umræðu allri saman undanfarnar vikur um mögulega sameiningu við HR hefur mikið verið einblínt á  sparnað í krónum sem sameining gæti haft í för með sér. Auðvitað er ekki hjá því komist að grípa til aðgerða vegna niðurskurðar fjárframlaga frá ríkinu, en þá er nauðsynlegt að skoða málið til enda áður en ákveðið er að leggja niður staðnámsbrautir á Bifröst eins og sameiningarviðræðurnar við HR virtust stefna að. Skoða þarf af alvöru aðrar leiðir til að stuðla að því að háskólastarfið hér á Bifröst geti haldið áfram með sem líkustum hætti og verið hefur. Að ógleymdu því hvað Háskólinn á Bifröst er mikilvægur fyrir sveitarfélagið Borgarbyggð, skólinn er stór vinnustaður og skapar einnig fjölmörg afleidd störf s.s. í leikskóla og grunnskóla auk þess sem við leitum mikið í Borgarnes eftir verslun og þjónustu.

 Að mínu mati er ómögulegt að meta skólastarfið hér á Bifröst til fjár.

Ég held að það þurfi að kynna betur út á við hvað þessi skóli er í raun., hvaða þýðingu skólinn hefur fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra. Við höfum lent í því af og til að neikvæð atvik sem hafa átt sér stað fara í fjölmiðlaumfjöllun og setja blett á okkar frábæra skóla og okkar fámenna en yndislega samfélag.  En starfið sem hér fer fram innan veggja Háskólans og mannlífið hér á campus á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Það þarf að setja í forgrunn í umræðunni um skólastarfið hér á Bifröst.

Hér býr á litlu svæði hópur af fólki sem öll eru hingað komin til að stefna að sama markmiði, að öðlast góða og hagnýta menntun. Hér verður því mikil samkennd með nemendum sem búa og læra saman alla daga. Kennsluaðferðir skólans var aðal ástæða þess að ég valdi að stunda mitt nám á Bifröst. Hér er mikil áhersla lögð á verkefnavinnu og að leysa raunhæf verkefni – og líklega er meiri verkefnavinna hér en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Hver áfangi í grunnnáminu er kenndur í tíu vikur og í hverjum áfanga eru gerð níu verkefni sem sum hver eru töluvert umfangsmikil. Þetta þýðir að nemendur ert að skila af þér gríðarlegum verkefnafjölda á hverri önn. Þessi verkefnavinna þrælar manni í gegnum námsefnið og gerir miklar kröfur til að nemendur meðtaki það sem fræðin kenna þeim. Þú ert strax látinn setja fræðilega þekkingu í samhengi við raunveruleg verkefni og þar er sérstaða Bifrastar einna mest. Að ógleymdum þeim ómetanlega lærdómi að þú þarft að vinna hratt og vel og standa skil á þínu innan skilafrestsins. Þetta skilar kraftmiklu fólki út í atvinnulífið að námi loknu, fólki sem gengur beint í störfin og leysir þau verkefni sem lögð eru fyrir þau.

Hér er mikið af fjölskyldufólki sem nær að sameina vel fjölskyldulíf og nám  með því að búa hér á staðnum. Börnin hér koma heim með skólabíl að skóla loknum og í flestum tilvikum hafa foreldrar kost á því að vera heima og taka á móti börnum sínum. Hér eru fjarlægðir litlar og börnin hafa okkur ávallt í seilingarfjarlægð. Og mikið er um að fólk hjálpist að og styðji hvert annað í námi og einkalífi. Ég get sagt fyrir mitt leyti að ég lít á það sem forréttindi að eiga möguleika á því að stunda nám á þann hátt sem ég get hérna. Hér stendur bíllinn minn ónotaður út á bílastæði dögum saman og það er mikill tímasparnaður í því að þurfa ekki að keyra á milli staða eins og ég þyrfti ef ég væri í háskólanámi í Reykjavík, tímasparnaður sem nýtist í lærdóm eða samveru með dætrunum. Börnin hér stunda íþróttir og aðrar tómstundir á Varmalandi eða í Borgarnesi og auðvitað fylgir því akstur. En af því við búum í þessu frábæra samfélagi sem við gerum hér á Bifröst þá að sjálfsögðu sameinast foreldrar um aksturinn og létta þannig undir hver með öðrum. Í Reykjavík væri þetta ekki jafn auðvelt og margir foreldrar eru á sífelldum þönum að skutla og sækja börnin í íþróttir og tómstundir.

Ég man hvernig mér leið fyrstu önnina mína hérna í námi, mér fannst ég lifa algerlega stresslausu lífi og var alsæl. Álagið í lífi mínu hérna tengdist helst því að ná að klára verkefnin á tilsettum tíma. Það eru gríðarleg lífsgæði fólgin í því að vera ekki alltaf á endalausum þeytingi á milli staða.

Hér höfum við nánast allt sem við þurfum og það í göngufæri, ég meira að segja geng 48 skref í skólann, en bara 22 skref ef ég fer út um svalahurðina Smile Hér er engin þung morgunumferð, ekkert óðagot af því það kemur hálka og umferðin í Reykjavík verður stopp, ég þarf ekki að skafa af bílnum og ég þarf ekki að skutla og sækja börn í skóla eða leikskóla og maður er ekki í endalausri tímaþröng við að ná á milli staða á réttum tíma. Það er ólíku saman að jafna að lifa í stressi eða lifa í afslöppuðu andrúmslofti.

En þó má ekki gleyma einum mikilvægasta punktinum því hér er líka mjög hagstætt að lifa, húsaleigan er  mjög sanngjörn og húsnæði hér er af ýmsum stærðum og gerðum og hentar flestum fjölskyldum. Hvar í Reykjavík gæti ég búið í þriggja herbergja raðhúsi á tveimur hæðum með garð fyrir framan og pall fyrir aftan og borgað 79 þúsund krónur á mánuði? Frá þeirri fjárhæð dragast svo húsaleigubætur sem taka mið af fjölskyldustærð og tekjum. 

Auk þess er margt innifalið í skólagjöldum sem annars væri útgjaldaliður hjá okkur værum við í námi annars staðar. Sem dæmi er háhraða internettenging innifalin í skólagjöldunum og ekki bara í skólahúsnæðinu sjálfu heldur í öllum íbúðum hér á campus. Við fáum prentkvóta á hverri önn og höfum aðgang að prenturum og ýmsu sem lítur að frágangi verkefna. Nemendur hafa aðgang að fullkominni líkamsrækt og gufubaði auk þess sem hér eru tveir heitir pottar og sólbaðsaðstaða - sól er þó ekki innifalin allt árið.

Hér á svæðinu höfum við einnig kaffihús, verslun, bókasafn og hraðbanka svo eitthvað sé nefnt. Golfvöllurinn Glanni er hér í göngufæri auk þess sem umhverfið hérna er ótrúlega fallegt og fjölbreytt og bíður upp á margs konar útiveru. Ég hvet alla sem hafa hug á því að fara í háskólanám að skoða vel hvort Háskólinn á Bifröst gæti ekki verið góður valkostur, ég mæli með skólanum og hef átt hér frábær ár en innan árs klára ég námið mitt og fer út í atvinnulífið þremur háskólagráðum ríkari en ekki minna rík af reynslu og vinum.

Háskólinn á Bifröst er frábær háskóli með góð gildi, góða kennara, gott starfsfólk, gott námsframboð og síðast en ekki síst frábæra nemendur, marga hverja sem ég held að við eigum eftir að sjá mikið af í framtíðinni. Fólk sem á eftir að láta að sér kveða í þjóðfélaginu. Þroskað fólk með góða menntun – það er fólk sem Ísland og íslendingar þurfa á að halda.

Áfram Bifröst!

 


mbl.is Nemendur styðja rektor á Bifröst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband